Hver stöð fær einkunn frá 0 til 100 fyrir hvern dag, reiknaða út frá spánni klukkan 6, 12 og 18. Kortið sýnir fimm daga. Eftir klukkan 16 fellur dagurinn í dag út.
Úrkoma50%
Úrkomutákn lækkar einkunnina þótt mæld úrkoma sé 0 mm. Snjór og slydda telja eins og rigning.
Hiti25%
Miðað við raunhita. Fullt hús frá 14 °C.
Vindur25%
Logn upp að 3 m/s.
Allir þrír þurfa að vera í lagi til að einkunnin verði há. Auk þess setur hver þeirra þak á daginn:
Rigning eða snjókoma allan daginn heldur einkunninni undir 20 stigum.
Kuldi, miðað við kaldasta tíma dagsins
7 °C og hlýrra
ekkert þak
3 °C
mest 60 stig
0 °C
mest 39 stig
−5 °C og kaldara
mest 10 stig
Vindur
5 m/s og minna
ekkert þak
8 m/s
mest 60 stig
11 m/s
mest 39 stig
14 m/s
mest 20 stig
17 m/s og meira
mest 10 stig
Raunhiti er litla talan við hitann á spjaldinu: hvernig hitinn upplifist í vindi og raka. Til dæmis er 5 °C í 7 m/s og 80% raka raunhiti upp á −2 °C. Talan birtist þegar raunhitinn er 2 °C eða meira undir mældum hita, og aðeins á stóru spjöldunum. Þetta er sami raunhiti og spásíða hverrar stöðvar sýnir.
Frost er merkt á punktinn: neðri helmingurinn verður blár þegar kaldasta gildi dagsins er 0 °C eða lægra.
0 til −2 °C
−2 til −5 °C
−5 til −10 °C
−10 °C og kaldara
80–100
Frábært
60–79
Gott
40–59
Þokkalegt
20–39
Slæmt
0–19
Leiðinlegt
Talan við hvern landshluta (t.d. 24/33) sýnir hve margar stöðvar þar ná 60 stigum eða meira.